
Fyrir 4
800 g fersk bláskel (eða frosin)
400 g gott linguini pasta, ferskt eða þurrkað
4 skalotlaukar, saxaðir
4 hvítlauksrif í þunnum sneiðum
1 búnt steinselja, söxuð
Þurrkaðar chiliflögur eftir smekk
U.þ.b. 300 ml hvítvín
100 g smjör í bitum
1 sítróna, skorin í 6 báta
Ólífuolía
Salt eftir smekk
Aðferð:
Skolið og undirbúið kræklinginn. Verið viss um að skeljar séu lokaðar, tínið frá þær sem eru opnar.
Sjóðið linguini pasta í miklu vatni 1-2 mínútum skemur en segir til á pakkningu.
Svitið laukinn, hvítlaukinn, chiliflögur og 2 sítrónubáta í ólífuolíu við miðlungshita á góðri pönnu/pönnum.
Best er að gera þennan rétt í pönnu fyrir hvern og einn en einnig er hægt að skipta uppskriftinni í tvennt og laga í tveimur pönnum.
Uppskriftin kemur frá veitingastaðnum Essensia.