Gullinn, óskír. Sætuvottur, þéttur, lítil beiskja. Höfugur. Brauðdeig, banani, negull, sí Sjá meira
Gullinn, óskír. Sætuvottur, þéttur, lítil beiskja. Höfugur. Brauðdeig, banani, negull, sítrus.
Weizenbock
Hér má finna Bock útgáfu af þýska hveitibjórnum. Er að vissu leyti þéttari útgáfa af dunkelweizen með einkenni af þéttu malti, plómum og rúsínum ásamt gertónum eins og negul og banana. Hefur mikla freyðingu og fremur litla beiskju.
Hveitibjór
Hveitibjóra er hægt að finna í ýmsum útgáfum en tveir algengustu flokkarnir eru Weizen frá suður Þýskalandi sem hafa oftast nokkuð áberandi ilm af banana og negul og Witbier frá Belgíu sem hafa yfirleitt léttari fyllingu en þeir þýsku, auk þess að vera oft á tíðum kryddaðir með hráefnum eins og sítrusberki og kóríander. Hveitibjórar hafa yfirleitt nokkuð mjúka fyllingu, humlaeinkenni eru ekki áberandi og beiskja fremur lítil. Vínandastyrkur getur verið frá 4,5% til 8%.Bjórar í þessum flokki eru bestir framreiddir við um 7-13°C Sjá minna