Bragðlýsing
Kirsuberjarautt. Létt meðalfylling, ósætt, súrt, miðlungstannín, létt freyðing. Balsamedik, súr kirsuber, lyng.
Náttúruvín
Náttúruvín eru hugtak yfir vín sem eru framleidd á náttúrulegan hátt þar sem tækni í víngerð er sparlega notuð, án tilbúins gers og með lítilli eða engri viðbót aukefna á borð við súlfít. Ekki eru til almennar reglur um náttúruvín og þess vegna er það framleiðandi sem ákveður hvort vín kallist náttúruvín.
Náttúruvín geta verið skýjuð eða gruggug og stundum lítillega freyðandi. Þau geta verið súr og haft áberandi oxunartóna. Hvítvín geta verið tannísk. Ofangreindir þættir sem teldust gallar í venjulegum vínum geta verið réttir eiginleikar í mörgum náttúruvínum.