Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

RecipeCollection-2021

  1. Skolið jarðarberin, leggið í eldfast mót og hellið yfir þau sætu hvítvíni.
  2. Kreistið úr límónu yfir berin, stráið síðan yfir þau rósapipar og hrásykri og dreypið loks olíu yfir.
  3. Látið standa í 1 klukkustund.
  4. Takið jarðarberin úr leginum og setjið á grillspjótin. Grillið öðrum megin í þrjár mínútur.

 

VANILLUSKYRKREM
Gott er að byrja á því að búa til skyrkremið. Þeytið rjómann í skál. Blandið vel saman rjómanum, vanilluskyrinu, safa úr sítrónu og berkinum. Setjið í kæli.

Setjið á diska, hellið vínleginum yfir og berið fram með vanilluskyrkreminu.

VÍNIN MEÐ

Sæt eftirréttavín passa hér vel.