Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

RecipeCollection-2021

  1. Grillið brauðið
  2. Penslið með ólífuolíu og nuddið því næst hvítlauksgeiranum við brauðið
  3. Setjið „tómataklassík“ ofan á brauðið
  4. Skerið mozzarella í fallega bita og raðið ofan á
  5. Skreytið með steinseljunni

 

CIABATTA-BRAUÐ

  1. Hveitinu, þurrgerinu og saltinu er hrært saman
  2. Því næst er vatninu og olíunni hellt í mjórri bunu saman við blönduna og hnoðað þar til deigið hefur fengið slétta áferð.
  3. Þá er það látið hefa sig í 30 mínútur.
  4. Síðan er deigið mótað í lengjur og látið hefa sig aftur í um 30 mínútur. 
  5. Loks er brauðið bakað á 220 °C í um 13 mínútur eða þar til það er orðið gullinbrúnt.

 

TÓMATAKLASSÍK

  1. Skerið tómatana í tvennt, saxið hvítlaukinn og bakið í um 10 mínútur á 180°C.
  2. Takið hýðið af tómötunum.
  3. Saxið basilið og blandið öllu saman.
  4. Skerið tómatana í grófa teninga. Kryddið með salti og pipar.
  5. Munið eftir að sigta vökvann frá.
  6. Hægt er að nota vökvann í tómatsúpu.

 

VÍNIN MEÐ

Smáréttavín henta vel með þessum klassíska rétti.