Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Tandoori kjúklingur

Fjöldi
4
Innihaldsefni 8 stk. kjúklingalæri TANDOORI KRYDDLÖGUR 350 g grískt jógurt 1 msk. olía 10-15 g tómatmauk 4 cm fersk engiferrót, rifin 1-2 hvítlauksgeirar, pressaðir 1 stk. ferskur chili, fínt sneiddur og fræhreinsaður ½ tsk. paprikuduft ½ tsk. kanilduft 2 tsk. garam masala ½ tsk. turmerik Salt Pipar RAUÐRÓFU-RAITA 350 g grískt jógurt 1 stk. rauðrófa, rifin 3 hvítlauksgeirar, pressaðir 2 msk. sítrónusafi 2 msk. ólífuolía Smá salt eftir smekk
Aðferð

TANDOORI KRYDDLÖGUR
Allt maukað saman í blandara. Kjúklingalærin sett í kryddlöginn og látin liggja í allt að sólarhring.

 

RAUÐRÓFU-RAITA
Öllu blandað saman í skál og borið fram með kjúklingnum.

 

VÍNIN MEÐ
Með þessum rétti er gott að hafa lífrænt rauðvín og gæta þess að það sé frekar kraftmikið og mikill ávöxtur eða smá sæta hjálpar til. 

Frá þemadögum ´Lífrænir dagar´- 2016 (PDF) Uppskrift fengin frá Steinari Þór Þorfinnssyni, Krúska
Fleiri Kjúklingaréttir