Frá Soave-héraðinu í Veneto á Norður-Ítalíu, skammt austan við borgina Verona, kemur hvítvín sem ber heiti héraðsins. Vín frá þessu svæði hafa lengi verið framleidd en eru þó ekki eins þekkt og annað hvítvín sem framleitt er í Veneto.
Aðalþrúgan í Soave-vínum er Garganega, sem þarf að vera að minnsta kosti 70% af blöndunni samkvæmt reglum svæðisins. Einnig má nota aðrar leyfðar þrúgur í minna magni. Garganega gefur vínunum einkennandi ilm af sítrus, blómum, perum og stundum möndlum. Soave hvítvínin henta vel með fiski, skelfiski, léttum pastaréttum, salötum og hvítu kjöti.
Það eru nokkrar mismunandi gæðaflokkanir innan Soave. Soave DOC er grunnflokkurinn, en Soave Classico DOC kemur frá upprunalega og sögulega svæðinu þar sem vínrækt á þessu svæði hófst. Hæsti flokkurinn er Soave Superiore DOCG, sem uppfyllir strangari kröfur um framleiðslu og gæði en einnig er að finna sætvínið Recioto di Soave DOCG.
Ef þú ert í vafa hvar Soave vínin er að finna í hillum Vínbúðanna þá er starfsfólk okkar reiðubúið til að aðstoða.

Berglind Helgadóttir DipWSET
Vínsérfræðingur