Margir þekkja eflaust til Lambrusco, enda hefur það verið lengi til staðar í hillum Vínbúðanna. Oft hefur mér fundist að Lambrusco sé misskilið og margir sem líta á þennan drykk sem eitthvað ódýrt, sætt og auðdrekkanlegt með enga sérstaka tengingu við mat, en ég get fullvissað ykkur um að það er alls ekki málið. Því er tilvalið að fara létt yfir helstu eiginleika Lambrusco og hvað það er sem gerir þetta að stórkostlegu matarvíni.
Lambrusco á rætur sínar að rekja til Emilia-Romagna og Lombardy héraðanna á Ítalíu. Nafnið „Lambrusco“ kemur í raun frá nokkrum náskyldum þrúgum sem bera sama heitið. Þær þekktustu eru Lambrusco di Sorbara, Lambrusco Grasparossa di Castelvetro og Lambrusco Salamino. Allar þessar þrúgur hafa mismunandi einkenni sem nýtist í þá mörgu stíla sem Lambrusco býður uppá. Þessi vín geta verið bæði þurr eða alveg sæt, sem fer eftir ákvörðun víngerðarmannsins, en aðal einkenni vínsins eru léttfreyðandi eiginleikar sem ýta undir ferskleika vínsins. Einnig eru til dæmi um Lambrusco sem eru framleidd í freyðivínsstíl.
Helstu bragðeinkenni þrúgunnar eru í léttum rauðum ávöxtum, eins og jarðarberjum, hindberjum og kirsuberjum, ásamt léttum blómatónum. Þetta eru yfirleitt létt vín með litlum tannínum og jafnvel með smá snerpu. Þurrari stílar geta síðan myndað með sér létta jarðartóna og beiskju.Vegna létt freyðandi stíls vínsins, hinnar snörpu sýru og mismunandi sætleika er Lambrusco einstaklega gott matarvín, en pörunin fer eftir sætleika vínsins.
- Þurrt Lambrusco passar mjög vel með bæði þroskuðum ostum og fituríkari réttum. Pítsur, hamborgarar og pastaréttir eins og lasagna og ragú leyfa víninu virkilega að njóta sín.
- Hálfsætt Lambrusco passar vel með öllu sterk krydduðu og söltu. Chilli réttir og grillmatur myndu ganga vel hérna, en helst má nefna hráskinkur, harða ítalska osta og kryddpylsur. Annað sem passar vel er reyktur matur; Lambrusco og hamborgarhryggur er pörun sem ég tel að allir þurfi að prófa.
- Sætt Lambrusco passar síðan best með eftirréttum eins og súkkulaði og ferskum berjum.
Lambrusco er best borið fram kælt eða í sirka 9-13°C. Fínt er að geyma það í ísskáp áður en vínsins er neytt. Gæta þarf vel að hitastiginu því ef það er of kalt geta tannínin í víninu verið of hörð og vínið bragðdautt, en ef vínið er of heitt gæti það orðið flatt og ávöxturinn í ójafnvægi. Lambrusco er til sem rautt, hvítt og rósavín og hægt er að finna flesta þessa stíla í hillum Vínbúðanna og í sérpöntun á vinbudin.is.
Munið að njóta vel!

Magnús Amadeus Guðmundsson
vínráðgjafi