Koníak er tegund af brandí sem framleitt er í Cognac-héraði í Frakklandi og á sér sögu sem spannar margar aldir. Nafnið „brandy“ er dregið af hollenska orðinu brandewijn eða „brennt vín“, sem vísar til eimingarferlisins.
Uppruna drykkjarins má rekja til arabískra eimingarmeistara á 7. og 8. öld, en það var ekki fyrr en menn fóru að geyma hann í eikartunnum að þeir uppgötvuðu að drykkurinn varð mýkri, flóknari og bragðbetri með aldrinum. Koníak er einmitt þekkt fyrir þessi einkenni og bragð af þurrkuðum ávöxtum, kryddum, vanillu og eik.
Koníak hefur lifað af plágur, heimsstyrjaldir og efnahagskreppur og þessi lúxusdrykkur, sem notið hefur vinsælda í yfir 300 ár, er enn talinn einn virtasti eimaði drykkur heims.
Í Vefbúðinni er að finna úrval af koníaki og öðru brandí og einnig er hægt að finna spennandi brandí-kokteila á kokteilsíðunni okkar fyrir þá sem vilja kynna sér það.
Dagrún Jónsdóttir,
starfsmaður Vínbúðanna og kokteilbarþjónn