Koníak er tegund af brandý sem framleitt er í Cognac-héraði í Frakklandi og á sér sögu sem spannar margar aldir. Nafnið „brandy“ er dregið af hollenska orðinu brandewijn eða „brennt vín“, sem vísar til eimingarferlisins.
Uppruni drykkjarins má rekja allt aftur til arabískra eimingarmeistara á 7. og 8. öld, en það var ekki fyrr en menn fóru að geyma hann í eikartunnum á 17. öld að þeir uppgötvuðu að drykkurinn varð mýkri, flóknari og bragðbetri með aldrinum - sem koníak er þekkt fyrir í dag – keim af þurrkuðum ávöxtum, kryddum, vanillu og eik.
Koníak hefur lifað af plágur, heimsstyrjaldir og efnahagskreppur og þessi lúxusdrykkur, sem notið hefur vinsælda í yfir 300 ár, er enn talinn einn virtasti eimaði drykkur heims.
Dagrún Jónsdóttir,
starfsmaður Vínbúðanna og kokteilbarþjónn