Beaujolais Nouveau

Þriðja fimmtudag í nóvember er svokallaður Beaujolais Nouveau dagurinn sem lendir á 19. nóvember í ár. Á þessum degi má byrja að selja uppskeru haustsins af Beaujolais, þannig að í ár fáum við 2026 árgerð í hillurnar. Hér má sjá úrvalið í ár. 

Eins og gefur til kynna er Beaujolais Nouveau nýtt og ferskt vín, einkennandi af ferskum berjaeinkennum og jafnvel örlitlum lyngtónum. Best er að bera vínið fram örlítið kælt, 12-14°C og drekka eitt og sér eða með smáréttum og léttari mat, kalkún og kremkenndum ostum. 

Beaujolais og Gamay 

Beaujolais Nouveau er gert, eins og annað Beaujolais frá syðri vínræktarsvæðum Bourgogne, úr Gamay þrúgunni. Gamay hefur ekki öðlast jafnmikla frægð og nágranni hans í norðrinu, Pinot Noir, en skilar engu síður af sér áhugaverðum vínum. Öll framleiðsla í víngerð er með þeim hætti að hægt sé að tappa víninu á flöskur og koma þeim á markað fyrir þriðja fimmtudag í nóvember. Þetta eru því vín sem eru best ung og eiga helst ekki að daga uppi ár eða áratugi í hillum. Þó það væri reyndar áhugaverð tilraun.   

Hefðin 

Þó byrjað hafi verið að gera Beaujolais Nouveau á fyrri hluta síðustu aldar, þá var það ekki fyrr en upp úr miðri öldinni sem frönsk löggjöf gerði það kleift að selja þessi vín svo fljótt eftir uppskeru. Á meðan blómabylgjan, diskóið og svo pönkið ómaði í hátölurum, reis frægðarsól Beaujolais Nouveau. Smám saman stukku fleiri á vagninn og markaðurinn mettaðist um það bil á sama tíma og öll heimsbyggðin beið spennt eða örvæntingarfull yfir því hvað tölvur myndu gera þegar árið 2000 gekk í garð.  

Einhvers staðar hefur því verið fleygt fram að tískan fari alltaf í hringi og mögulega gerir hún það líka í vínheiminum. Á heimsvísu hefur hefðbundið Beaujolais fengið aukna athygli með aðstoð þekktra vínspekúlanta og Beaujolais Nouveau siglir á þeirri öldu. Þessi stíll af vínum á einnig samhljóm með þeim vínum sem hafa minni tannín, eru ferskari og fínlegri með bragðeinkennum rauðra berja. Eitthvað sem áhugavert er að skoða.  

 


Berglind Helgadóttir DipWSET
Vínsérfræðingur