Greinar
14.08.2018
-HJARTA MATARMENNINGAR FRAKKLANDS-
Um borgina Lyon renna tvær ár, Rhone og Saone, reyndar segja gárungar að árnar séu þrjár, að sú þriðja sé Beaujolais. Vínin frá því svæði og Rhone eru gjarnan í boði á veitingahúsum Lyon. Borgin er vel staðsett á milli þessara tveggja vínræktarsvæða. Lyon er þægileg borg, snyrtileg, með allt til alls og fullt af sögulegum minjum. Það má nefna að Claudius, fyrsti rómverski keisarinn sem fæddur var utan Ítalíu, fæddist í Lyon. 1528 fannst bronstafla með áletraðri ræðu Claudiusar, í víngarði á Croix-Rousse hæðinni. Í dag er þar einn stærsti útimarkaður í Lyon sem gaman er að rölta um.
03.08.2018
Vínheimurinn er gríðarstór og margt sem velkist um í honum sem nær ekki endilega á strendur þessarar eyju sem við köllum Ísland. Undanfarið hefur rekið á fjörur okkar nýjung, eða gömlung, sem kallast náttúruvín eða natural wine á ensku.
04.07.2018
Það er að mörgu að huga þegar halda á brúðkaupsveislu. Mjög mörgu. Sem betur fer eru fjölmiðlar duglegir að dæla út efni sem aðstoðar fólk við að skipuleggja veisluna. Og það er alltaf gott að fá aðstoð, sérstaklega ef maður er ekki excel sérfræðingur eða óvanur að skipuleggja með litakóðum.
12.06.2018
Hvort sem sumarið kemur, eða ekki, þá ætti það ekki að aftra okkur frá því að dreypa á freyðivíni, þó svo að það sé vissulega kannski aðeins ljúfara að hafa vermandi sólargeislana í andlitinu (og hífandi rokið í hárinu).
Undanfarið hefur freyðivínssala aukist mikið og hefur þá sérstaklega borið á Prosecco æðinu sem vaðið hefur yfir alla heimsbyggðina, sér í lagi í formi Aperol Spritz drykksins. Hann er þó langt í frá að vera eini freyðivínskokteillinn, né heldur er hann sá fyrsti. Nokkrar greinar er að finna um freyðivín hérna á Vínbúðarvefnum þar sem meðal annars er hægt að fræðast um ólíka stíla, framleiðsluaðferðir og sögu freyðivíns.
03.04.2018
Mér barst til eyrna fyrir stuttu að vorið væri í nánd og að því kuldakasti loknu kemur sumarið og sólin vermir með allt umvefjandi hlýjum geislum. Þann stutta tíma sem sumarið ræður ríkjum hér á landi er tilvalið að færa sig úr þungum, rauðum vínum yfir í léttari hvítvín. Hvítvín úr þekktum þrúgum eins og Chardonnay, Pinot Grigio og Riesling eru vinsælar, en hvernig væri að fara í smá óvissuferð og prófa vín úr öðrum þrúgum?
28.03.2018
Vissir þú að Chenin Blanc er mest ræktaða hvíta þrúgan í Suður Afríku, en þar gengur hún oft undir nafninu Steen? Þekkir þú Albarino þrúguna, en vínin sem úr henni eru gerð eru talin einhver bestu hvítu vín Íberíuskagans?
28.03.2018
Gewürztraminer þrúgan gefur allt sem hún á í vínin sín. Þetta er án nokkurs vafa sú þrúgutegund sem gefur af sér mestan ilm og kryddað bragð um leið, enda heitir hún (ef við þýðum yfir á íslensku) Kryddaði Traminerinn. Annað hvort elskar fólk þessa flóknu angan og bragð eða hatar, það virðist ekki vera neitt millibil til.
28.03.2018
Chenin Blanc er þrúga sem hægt er að framleiða ótrúlega marga mismunandi vínstíla úr. Hún er þekkt fyrir allt frá einstaklega langlífum sætvínum, sem framleidd eru í Loire dalnum í Frakklandi, til skerandi þurra og sýruríkra vína sem einnig eru framleidd þar.
28.03.2018
Airen er mest ræktaða hvíta þrúgan á Spáni. Helsta ræktunarsvæðið þar er La Mancha og það er svo stórt að talað hefur verið um það sem stærsta svæði veraldar þar sem ein og sama þrúgan er í ræktun...
27.12.2017
Á vef Vínbúðanna og í Vínbúðinni í Garðabæ eru léttvín skilgreind í flokka eftir karaktereinkennum, en þannig er auðvelt að finna rétta vínið eftir smekk hvers og eins.