Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Greinar

Greinar

Rauðvín í jólaglöggið

14.12.2022

Nú þegar aðventan er hafin og ýmsar jólahefðir láta á sér kræla þá berst gjarna á góma ein spurning í Vínbúðunum; ja fyrir utan jólabjórinn kannski. En það er ,,hvaða rauðvín á ég að velja í jólaglöggið?” Á þessum netvæðingartímum er ansi ágætt að geta leitað uppi uppskriftir á netinu og þær eru með mis-ítarlegum upplýsingum um innihaldsefnin. Þannig eru sumar uppskriftir til dæmis með koníaki eða rommi.

Írsk viskí

12.10.2022

Flestir sérfræðingar telja að bestu viskí veraldar komi frá Skotlandi, kannski réttilega, kannski ekki. Það eru þó að sjálfsögðu önnur lönd sem framleiða hágæða viskí eins og Japan, Bandaríkin, Ástralía, Ísland og Írland svo fá ein séu nefnd. En stöldrum aðeins við Írland.

Baska ostakaka

22.07.2022

Þegar hugsað er um eftirrétti á grill er örugglega það fyrsta sem mörgum dettur í hug bananar með súkkulaði. Það er vissulega orðinn svo að segja klassískur eftirrétta grillréttur, ásamt sykurpúðum, en ég var svo heppin að rekast á uppskrift um daginn sem heillaði mig algjörlega; Baska ostakaka.

Fordrykkir

05.05.2022

Fordrykkir eru, eins og orðið sjálft gefur til kynna, drykkir sem oftast nær er boðið upp á fyrir máltíð. Eitt aðalmarkmiðið með að bjóða upp á slíka drykki er að auka matarlystina. Fordrykkir eru því oft drykkir í léttari kantinum, þó svo að vissulega megi bjóða upp á það sem gestgjafa líst best á. Stundum er samtímis boðið upp á litla smárétti eða fingramat.

Páskar og súkkulaði

05.04.2022

Nú þegar páskarnir eru á næstu grösum fara mörg okkar að huga að páskasteikinni. Lambið er að sjálfsögðu alltaf vinsæll kostur hér á landi og jafnvel ein rauðvínsflaska, í betri kantinum, með. En það er nú ekki aðeins aðalrétturinn sem skiptir máli heldur líka það sem er borðað á milli mála yfir hátíðina.

Ákavíti

07.01.2022

Orðið aquavit/akvavit kemur úr latínu (aqua vitae) og þýðir bókstaflega vatn lífsins og er fyrst getið á Norðurlöndunum á 14. öld. Ákavíti eru vinsæl við hátíðartilefni í Skandinavíu og norður-Þýskalandi. Ákavíti finnast hér.

Hátíðarkalkúnn

21.12.2021

Vinsældir kalkúns í hátíðarmatinn hafa aukist töluvert síðari ár og vonandi eru það fáir sem lenda í jafn þurrum kalkúni og Griswold fjölskyldan í klassísku jólamyndinni Christmas vacation. Kalkúnninn einn og sér er tiltölulega hlutlaust, ljóst fuglakjöt og það er því hvernig hann er kryddaður og meðlætið sem býður upp á fjölbreytilegt ferðalag bragðs og áferðar.

Bláskel og vínin með

18.06.2021

Með bláskel gæti ferskur Sauvignon Blanc gengið vel upp. Nýsjálenskur Sauvignon Blanc er að öllu jöfnu ávaxtaríkari en franskur Sancerre, sem yfirleitt gefur af sér grösugri bragðeinkenni. Spænskur Albariño hefur bæði ferskleikann og ávaxtarík einkenni til að parast með bláskelinni...

Hvítvín og skelfiskur

18.06.2021

Þegar velja á hvítvín með skelfisk eru nokkur atriði sem ágætt er að hafa í huga. Skelfiskur er að öllu jöfnu bragðlítill og er það því matreiðslan sem hefur mikil áhrif á bragð og byggingu réttarins. Það er ekki aðeins grill, panna, ofn eða pottur sem hefur áhrif heldur einnig innihaldsefni réttarins eins og sítróna eða rjómi þar sem sýra og fita skipta máli fyrir pörun víns og matar. Gott er að vínin séu sýrurík og fersk en það má finna slík vín meðal annars úr þessum þrúgum: Chardonnay, Sauvignon Blanc og Riesling. Vín úr öðru þrúgum eins og Austurrískum Grüner Veltliner, spænskum Verdejo og spænskum Albariño geta vel gengið upp. Ef sterkt krydd, eins og chilli (eldpipar), er notað getur verið ágætt að finna Riesling með örlítilli sætu. Mörg vín frá Alsace úr mismunandi þrúgum eru oft með örlítilli sætu og geta því parast vel með sterkum réttum.

Rækjur og vínin með

18.06.2021

Ítalskur Pinot Grigio og Soave henta vel með rækjum og einföldum rækjuréttum. Sé notaður rjómi, smjör eða annað feitt innihaldsefni í réttinum getur verið ágætt að leita í sýruríkan Riesling.