Greinar

Greinar

Sardinía

20.06.2025

Sardinía er önnur stærsta eyjan á Miðjarðarhafi, á eftir Sikiley en hún er þekkt fyrir fallegar strendur og nuraghi, sérstæðar steinminjar sem eru á heimsminjaskrá UNESCO. Sardinía, eða Sardegna á ítölsku, er einnig vínræktarhérað sem hefur farið lítið fyrir en er vert að skoða, þá sérstaklega fyrir þær berjategundir sem þar er að finna og veðurfar.

Lambrusco

06.06.2025

Margir þekkja eflaust til Lambrusco, enda hefur það verið lengi til staðar í hillum Vínbúðanna. Oft hefur mér fundist að Lambrusco sé misskilið og margir sem líta á þennan drykk sem eitthvað ódýrt, sætt og auðdrekkanlegt með enga sérstaka tengingu við mat, en ég get fullvissað ykkur um að það er alls ekki málið. Því er tilvalið að fara létt yfir helstu eiginleika Lambrusco og hvað það er sem gerir þetta að stórkostlegu matarvíni.

Geymsla vína

06.02.2025

Eitt af því sem fólk veltir stundum fyrir sér þegar það kaupir vínflösku er það hversu lengi sé hægt að geyma flöskuna óopnaða. ,,Vínið batnar með árunum” heyrist oft fleygt fram og á vissulega við í ákveðnum tilfellum, en sumum tegundum léttvína er þó ekki ætlað að vera geymd í mörg ár, eða áratugi. Frá náttúrunnar hendi eru það tannín (rauðvín), sykur, sýra og alkóhól sem fyrirfinnast í léttvínum, sem auka geymsluþol vínanna.

Pörun með súrmat

13.01.2025

Nú þegar rykið er rétt nýsest eftir jólin er ekki seinna vænna að huga að þorranum og hvað sé hægt að drekka með þorramatnum. Þessum súra það er að segja, en sýran er mjög afgerandi þáttur í bragðbyggingu matarins.

Freyðivín um áramótin

27.12.2024

Það eru ótalmargir sem kjósa að opna freyðivín þegar klukkan slær á miðnætti á gamlárskvöld. Og hvernig er nú best að gera það?

Bjórinn með jólamatnum

23.12.2024

Fyrir þau sem eru tilbúin að leggja upp í ævintýri þegar kemur að vali að veigum fyrir hátíðarmatinn, þá getur verið tilbreyting í að velja bjór með matnum. Vissulega er jólalegra að velja jólabjór, en það er þó ekki einungis jólabjór sem gæti hentað með. Bjórinn er eins fjölbreytilegur og stílarnir eru margir og því er mikilvægt að hafa eigin smekk í huga þegar valinn er bjór.

Veganjól

19.12.2024

Ef halda á veganjól þar sem fara á alla leið, þá má finna hérna lista yfir allar þær vörur sem eru merktar vegan á vörulista vefbúðar Vínbúðanna. Hér eru síðan nokkrar skemmtilegar uppskriftir af vegan réttum af vinbudin.is.

Jólalegir forréttir

11.12.2024

Eflaust eru einhverjir farnir að huga að jólamatnum og þó svo að oftast fari mesta púðrið í aðalréttinn (og eftirréttinn, vil ég meina) þá má ekki gleyma forréttinum. Sumir leita í hefðina á meðan aðrir fara óhefðbundnar leiðir. Ef velja á vín með forréttinum þá eru nokkrar leiðir færar og ef þið þurfið aðstoð við valið, þá er frábært starfsfólk Vínbúðanna tilbúið að koma með tillögur. Það sem er þó alltaf vert að hafa í huga er manns eigin smekkur og því er tilvalið að láta starfsfólk okkar vita af því hvað er í mestu uppáhaldi þegar fengin er ráðgjöf.

Heimsins bestu víngarðar

13.11.2024

Mánudaginn, 4. nóvember 2024, voru árleg verðlaun veitt fyrir heimsins bestu víngarða til að heimsækja (e. World’s Best Vineyards). Athöfnin var haldin hjá Sussex framleiðandanum Nyetimber í Bretlandi og var Tim Atkin MW (e. Master of Wine) kynnir hátíðarinnar. Listinn telur upp 50 framleiðendur um allan heim sem þykja skara fram úr þegar kemur að upplifun heimsókna, hvort sem það er til að smakka vín eða læra um vínrækt og víngerð.

Rioja Reserva

16.10.2024

Rioja er eitt af rótgrónustu víngerðarsvæðum Spánar og í hillum Vínbúðanna, enda vöruskipti með fisk og vín ein af ástæðunum fyrir stofnun ÁTVR. Upp úr miðri 19. öld flúðu víngerðarmenn (Murrieta og Riscal) til Bordeaux vegna borgarastyrjaldar á Spáni. Við heimkomu fluttu þeir með sér bæði þekkingu og tunnur sem kallast barrique og eru 225 lítrar.