Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Ákavíti

Ákavíti
Orðið aquavit/akvavit kemur úr latínu (aqua vitae) og þýðir bókstaflega vatn lífsins og er fyrst getið á Norðurlöndunum á 14. öld.  Ákavíti eru vinsæl við hátíðartilefni í Skandinavíu og norður-Þýskalandi.

Þessir drykkir eru eimaðir úr kartöflum eða korni, allt eftir því hvaða land á í hlut, og verða samkvæmt lögum að bera einkenni af kúmeni eða dilli.  Samkvæmt hefð notast norskir framleiðendur við kartöflur, á meðan Danir og Svíar notast aðallega við korntegundir.  

Skandinavía spannar stórt svæði og eins og gefur að skilja eru mismunandi stílar á milli landa.  Svíar notast samkvæmt hefð meira við krydd eins og anís og fennel í sín ákavíti á meðan Danir notast við kúmen, dill og kóríander.  Norsk ákavíti eru síðan frábrugðin þeim sem koma frá öðrum Norðurlöndum að því leyti að flest þeirra eru látin þroskast á eik, oft í 1 ár eða lengur og eru því gullin að lit með áberandi tóna og mýkt frá eikinni.  Við Íslendingar höfum hefðinni samkvæmt notast við kúmen til þess að krydda ákavítin okkar, en framleiðendur eru einnig farnir að leika sér með eikarþroskun og önnur krydd, þó kúmenið sé ávallt í forgrunni, og verður spennandi að sjá og smakka hver þróunin á þessu sviði verður á komandi árum.

Nú þegar má finna í hillum Vínbúðanna alls kyns skemmtileg ákavíti, sem einnig má skoða hér á síðunni.   

 


Gísli Guðmundsson
vínráðgjafi