Í þessum flokki eru allir þeir lagerbjórar sem flokkast ekki sem hinn algengi ljósi lagerbjór. Erfitt er að greina nákvæmnlega hvað einkennir þennan flokk vegna þess hversu fjölbreyttur hann er. Hægt er að finna allt frá mjög möltuðum bjórum eins og bock til mjög reyktra bjóra eins og rauchbier. Beiskja getur verið lítil eða mikil og algengur vínandastyrkur er á bilinu 4,5% til 7,5%.
Annar lager – Keimur, mýkt, styrkleiki og beiskja