Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Umhverfið

Fjölnota alla daga - léttur poki sem fer lítið fyrir

Í umhverfis- og loftlagstefnu ÁTVR segir að til að tryggja góða frammistöðu í umhverfismálum:

  • berum við virðingu fyrir umhverfinu, förum vel með verðmæti og notum auðlindir af ábyrgð
  • viljum við að í daglegum rekstri okkar sé tekið tillit til umhverfisins og unnið að stöðugum úrbótum
  • uppfyllum við lagalegar kröfur á sviði umhverfismála og vinnum markvisst með mikilvæga umhverfisþætti ÁTVR

Fjölnota pokar sem hægt er að nota aftur og aftur 

Í Vínbúðunum hafa viðskiptavinir val um nokkrar tegundir fjölnota poka sem hægt er að nota aftur og aftur í stað einnota plastpoka. Pokarnir hafa notið mikilla vinsælda, enda auðveldlega hægt að nýta þá í fleiri innkaupaferðum. Það margborgar sig að fjárfesta í einum slíkum.

Árlega kaupa viðskiptavinir Vínbúðanna um 1,7 milljón plastburðarpoka en nú hafa þeir sem vilja vera umhverfisvænir fleiri valkosti í Vínbúðunum.

 

Græn skref í Ríkisrekstri

Vínbúðirnar eru stoltir þátttakendur í Grænum skrefum í Ríkisrekstri en hér má sjá nánari upplýsingar um það verkefni.

Græn skref í ríkisrekstri

 

Rannsókn á umhverfisáhrifum áfengra drykkja 

Norrænu áfengiseinkasölurnar hafa útbúið vistferilsgreiningu á áfengum drykkjum. Skráð voru heildarumhverfisáhrif allra vöruflokka Norrænu áfengiseinkasalanna, en greiningin byggist á magni áfengra drykkja sem dreift var af Norrænu áfengiseinkasölunum 2014 og nær til vöruflokkanna víns, bjórs og eimaðra drykkja. Hér má sjá helstu niðurstöður og einnig alla skýrsluna í heild sinni.

Samgöngusamningar