Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Seturðu hvað sem er upp í þig? Munntóbak er ógeð!

18.04.2013

Vínbúðirnar hafa farið af stað með nýja herferð undir slagorðinu: "Seturðu hvað sem er upp í þig? Munntóbak er ógeð!" Markmiðið er að stuðla að minni notkun neftóbaks á meðal ungs fólks í samræmi við markmið laga og stefnu fyrirtækisins um samfélagslega ábyrgð.

Auglýsingunni er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um skaðsemi munntóbaks og minna ungt fólk á að munntóbak er skaðlegt ekki síður en ógeðslegt. Í auglýsingunni er munntóbaki líkt við rusl til að vekja athygli á því að engum myndi detta í hug að hafa það langtímum saman í munninum. 

Auglýsingin er fyrsta íslenska auglýsingin sem framleidd er í þrívídd og verður hún sýnd í kvikmyndahúsum. Þannig er reynt að ná til ungs fólks, en ungir karlmenn eru í miklum meirihluta neytendur samkvæmt könnun sem Landlæknisembættið gerði fyrri hluta árs 2012.


Einnig verða birtar áminningar á netinu og ruslafötum komið fyrir á nokkrum stöðum, m.a. í bíóhúsum. 

 

Seturðu hvað sem er upp í þig? Munntóbak er ógeð.