Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Styrkbeiðnir

ÁTVR styrkir ýmis góðgerðar- og forvarnarverkefni en aðaláherslan er þó á málefni sem tengjast neyslu vímuefna og fyrirbyggjandi starfsemi.

Hér gefst færi á að senda okkur beiðnir um styrki. Öllum beiðnum er svarað, en vegna fjölda beiðna verðum við því miður stundum að hafna spennandi verkefnum. Styrkbeiðnum er ekki svarað í síma.

Eftirfarandi verður að koma fram á styrkbeiðninni:

  • Hver sækir um: Einstaklingur - félag - samtök
  • Tengiliður: Nafn, símanúmer/GSM og netfang
  • Hvers vegna er sótt um: Samandreginn texti um helstu atriði umsóknar
  • Upphæð sem sótt er um
  • Tímarammi - dagsetning
  • Einnig má senda með viðhengi með ítarlegri texta og öðru ítarefni þar sem við á.

Hér getur þú sótt um styrk eða sent á netfangið styrkur@vinbudin.is

Athugið að það tekur að lágmarki 7-10 daga að fá svar við styrktarbeiðnum og því um að gera að senda fyrirspurnir tímanlega. 

Styrkbeiðnir