Að selja vörur í Vínbúðunum
Hér má finna leiðbeiningar um hvað þarf að gera til að koma áfengi í sölu í Vínbúðunum, upplýsingar um hvernig stofnað er til viðskipta, verðlagning og hvernig viðskipti við ÁTVR ganga fyrir sig.
Innflutningur áfengis
ÁTVR flytur ekki inn áfengi, heldur kaupir áfengi af innlendum áfengisheildsölum/birgjum. Birgjarnir senda ÁTVR umsóknir um vörur til sölu í vínbúðum í gegnum birgjavef sem þeir fá aðgang að við undirritun stofnsamnings. Hér er hægt er að fylla út stofnsamninginn rafrænt. Umsóknirnar fara í framhaldinu í fyrirfram ákveðið ferli.
Áfengisgjald, virðisaukaskattur og önnur lögboðin gjöld er greidd í toll við innflutning.
Allar nánari upplýsingar um áfengisgjald má finna inn á www.tollur.is
ÁTVR hefur enga milligöngu ef ætlunin er að panta vín erlendis frá.
Öllum er heimilt að flytja inn áfengi til einkanotkunar.
Áfengisheildsöluleyfi þarf til innflutnings á áfengi til endursölu, heildsölu eða framleiðslu áfengis í atvinnuskyni.
Leyfið er gefið út af sýslumanni í hverju umdæmi. Nánari upplýsingar má fá á skrifstofum sýslumanna eða hjá leyfi@syslumenn.is.
Hér má nálgast umsókn um leyfi til framleiðslu, innflutnings eða sölu áfengis.
Áfengisheildsöluleyfið veitir rétt til þess að selja vöruna áfram til endurseljenda, en það eru handhafar vínveitingaleyfa (föst vínveitingaleyfi, svo sem veitingahús, hótel, barir o.s.frv.) og ÁTVR sem hefur einkaleyfi til smásölu á áfengi.
Rétt er að benda á að þeir sem hyggja á innflutning og/eða framleiðslu áfengis þurfa að hafa sótt um starfsleyfi frá heilbrigðiseftirliti viðkomandi sveitarfélags til að fá áfengisheildsöluleyfið.
Allir þeir sem náð hafa 20 ára aldri mega flytja inn áfengi til eigin nota.
Við innflutning á áfengi þarf að greiða opinber gjöld þ.m.t. áfengisgjald, skilagjald og virðisaukaskatt.
Upplýsingar um áfengisgjald má sjá hér: www.tollur.is og Lög um aukatekjur ríkissjóðs.
Frekari upplýsingar um hvernig hægt að gerast birgi hjá ÁTVR.
Verðlagning áfengis
Áfengi ber áfengisgjald og skilagjald sbr. neðangreindri töflu. Við innflutning ber innflytjanda að greiða til tollstjóra áfengisgjald og skilagjald vegna umbúða. Á heimasíðu Tollstjóra má nálgast reiknivél fyrir gjöld af áfengi. Þessi gjöld eru greidd við tollafgreiðslu vörunnar. Tafla birt með fyrirvara um breytingar.
ÁFENGISGJALD
Skv. breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2023 hækkar áfengis- og tóbaksgjald og verður skv. eftirfarandi:
TÓBAKSGJALD
Skv. breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2023 hækkar áfengis- og tóbaksgjald og verður skv. eftirfarandi:
Gildir frá 1. janúar 2017
Álagning reiknast af innkaupsverði ÁTVR frá birgi.
• Álagning ÁTVR er 18% á áfengi sem inniheldur til og með 22% vínanda miðað við rúmmál (t.d. bjór og léttvín).
• Álagning ÁTVR er 12% á áfengi sem inniheldur vínanda yfir 22% miðað við rúmmál (sterkt áfengi).
• Virðisaukaskattur á áfengi er 11% frá 1. janúar 2016.
Hér er dæmi um verðútreikning
(Birt með fyrirvara um breytingar. Gildir frá 1. janúar 2016).
Innkaupsverð ÁTVR á áfengi inniheldur áfengisgjald og skilagjald. Verð úr verslun er innkaupsverð að viðbættri álagningu ÁTVR og virðisaukaskatti.
Gölluð vara og skil á óopnaðri vöru
Hægt er að skila skemmdri eða gallaðri vöru og fá aðra í staðinn, annað eintak sömu vöru eða endurgreiðslu / inneignarnótu.
Hægt er að skila öllum vörum sem fást í Vínbúðum og teljast heilar og óskemmdar. Skilafrestur er 30 dagar gegn framvísun kassakvittunar, reiknings eða skiptimiða.
Reikningur vefpantana er alltaf aðgengilegur á Mínum síðum.
Athugið að ekki eru settir skiptimiðar á sérpantanir, þar sem þeim er ekki hægt að skila. Einnig eru ekki settir skiptimiðar á magnkaup, þá nýtist reikningur til skila.
Vörur
Veisluvínsþjónustan okkar aðstoðar eftir fremsta megni í slíkum tilfellum. Hér er hægt að lesa sig til um þjónustuna sem við bjóðum upp á. Sendið þeim tölvupóst á veisluvin@vinbudin.is
Upplýsingar um allar vörur í vöruvali Vínbúðanna er að finna í Vöruleitinni á vef okkar. Með því að fara í vöruspjald vörunnar er einfalt að sjá hvort varan sé til, í hvaða Vínbúð og í hvaða magni. Birgðastaða er uppfærð reglulega og er því nokkuð nákvæm.
Reglulega koma árstíðabundnar vörur í sölu hjá Vínbúðunum s.s. jólabjór, þorrabjór, páskabjór, sumarbjór og fleiri flokkar. Til að sjá hvaða vörur eru í vöruvali í tímabundinni sölu eins og t.d yfirlit yfir jólabjóra, þá er hægt að fara í vöruleitina og haka við„tímabundin sala“ og þá birtast niðurstöður yfir þær vörur sem falla undir þessa skilgreiningu.
Já, ÁTVR selur ennþá óáfeng rauðvín, hvítvín og freyðivín.
En þar sem óáfengir drykkir, svo sem óáfengur bjór, vín og fleiri gerðir eru víða fáanleg, t.d. í matvöruverslunum, hefur ÁTVR ákveðið að hætta sölu á óáfengum drykkjum og má gera ráð að birgðir í eigu ÁTVR klárist á fyrra hluta 2022.
Vefverslun
Á virkum dögum er hægt er að sækja vefpöntun samdægurs í vöruafgreiðslu, Stuðlahálsi 2. Panta þarf með tveggja klst. fyrirvara, í síðasta lagi fyrir kl. 14 til að geta sótt samdægurs. Vöruafgreiðslan er opin frá mán - fim 8:30 til 15:30 og fös: 8:30-16:00.
Í vefversluninni er einnig hægt að velja Vínbúð sem sækja á pöntunina í ef það hentar betur.
Á höfuðborgarsvæðinu tekur afhending í Vínbúð 1-3 daga, en að hámarki 7 daga í öðrum Vínbúðum. Viðskiptavinurinn er látinn vita þegar pöntun er tilbúin til afgreiðslu í Vínbúð.
Sérpantaðar vörur eru þær sem ekki eru til í hillum Vínbúðanna og eru pantaðar beint frá innlendum birgjum. Hægt er að sérpanta flestar þær vörur sem áfengisheildsalar hér á landi bjóða upp á. Markmiðið er að bjóða fjölbreytt vöruúrval en auk þess úrvals sem fæst í Vínbúðunum er það enn fjölbreyttara í hér á vefnum.
Hér er hægt að sjá hvaða tegundir eru til í Vefbúðinni:
Viðskiptavinir hafa kost á að kaupa þær í bland við vörur sem þegar eru til sölu í Vínbúðunum. Sérpantaðar vörur geta tekið lengri tíma í afhendingu, en ekki er lagt aukagjald ofan á slíkar vörur. Ef pöntun úr Vefbúðinni inniheldur bæði vöru sem þegar er til í Vínbúðunum og sérpantaða vöru, fær viðkomandi tvö pöntunarnúmer og getur valið um að sækja pantanirnar í sitthvoru lagi.
Athugið að ekki er hægt að skila sérpantaðri vöru.
Finnur þú ekki vöruna á vefnum?
Ef þú finnur ekki það sem þú leitar að getur þú einnig sent FYRIRSPURN til okkar um hvort hægt sé að útvega vöru sem ekki er til í vörusafni okkar.
Allar ábendingar eða beiðni um aðstoð er hægt að senda á vinbudin@vinbudin.is
Hægt er að panta vín sem ekki er í vöruúrvali þeirrar Vínbúðar sem verslað er í.
Það er hægt að gera annaðhvort á vefnum eða í næstu Vínbúð. Hægt er að skoða vefverslunina hér.
Hægt er að sækja vörur sem pantaðar eru í vefverslun annað hvort í Vínbúð eða í vöruafgreiðslu á Stuðlahálsi 2.
Einnig er hægt að tala við starfsfólk Vínbúðarinnar og biðja það að gera pöntunina. Afhending á höfuðborgarsvæðinu tekur 1-3 daga og hámark 7 daga í öðrum búðum.
Ofangreint pantanaferli gildir fyrir alla viðskiptavini óháð staðsetningu Vínbúða.
Á vefnum www.vinbudin.is er auðvelt að panta og velja úr öllu vöruvali Vínbúðanna. Hægt er að velja á milli þess að sækja samdægurs í vöruafgreiðslu, eða fá sent í hvaða Vínbúð sem er – án endurgjalds. Sendingartími er um 1-3 dagar á höfuðborgarsvæðinu, en allt að 7 dagar í aðrar Vínbúðir. Við látum þig vita þegar varan er komin i búðina.
Vöruval í Vínbúðum er ólíkt eftir stærð, en Vínbúðir á minni stöðum hafa minna úrval. Í vefversluninni er hinsvegar hægt að nálgast allt vöruvalið og fá sent í þína Vínbúð – án endurgjalds.
Stærsta Vínbúðin er því í tölvunni þinni!
Hægt er að sjá hvaða vöruúrval er í hverri verslun með því að fara í vöruleitina og velja þar Vínbúð og þá birtist allt vöruvalið.
Tóbak
ÁTVR hefur framleitt neftóbak frá því fyrir stríð. ÁTVR kaupir möluð tóbakslauf frá Svíþjóð. Framleiðsluferlið er að mestu óbreytt frá upphafi framleiðslunnar þótt tækjakostur hafi að hluta verið endurnýjaður. Innihaldsefnum er blandað við hrátóbakið eftir gamalli uppskrift. Þegar blandan er tilbúin er hún sett í eikartunnur sem er vandlega lokað. Tóbakið er látið verkast í tunnunni í 7-8 mánuði. Eftir þann tíma er tóbakið tekið úr tunnunni og sett í horn eða dósir.
Innihaldsefnin í neftóbakinu eru möluð tóbakslauf, vatn, pottaska, salt og ammoníak. Pottaska (K₂CO₃) er efnasamband Kalíns og karbónats. Nafnið vísar til þess að efnið var frá fornu farið unnið úr viðarösku. Pottaskan hefur þrjú nöfn samkvæmt gömlum bókum, alkali, lútarsalt og pottaska. Pottaska er víða í gömlum uppskriftum, var stundum notuð í stað lyftidufts.
Reglulega eru tekin sýni af tóbakinu og send til mælinga þar sem m.a. er fylgst með rakastigi og kornastærð.
ÁTVR selur tóbak í heildsölu til þeirra aðila sem hafa gild tóbakssöluleyfi.
Ef viðskiptavinur kaupir skemmt eða gallað tóbak þarf viðkomandi að skila því til söluaðila (verslunar) sem kemur vörunni til ÁTVR sem gerir svo viðeigandi ráðstafanir.
Því miður þá sendum við hvorki áfengi né tóbak á milli landa.
Ýmislegt
ÁTVR styrkir góð málefni af ýmsum toga, en aðaláherslan er þó á að styrkja mannúðar- og forvarnarmál sem tengjast neyslu vímuefna og fyrirbyggjandi starfsemi.
Hér gefst fyrirtækjum og einstaklingum færi á að senda okkur beiðnir um styrki og hvers konar samstarfssamninga. Öllum beiðnum er svarað, en vegna fjölda beiðna verðum við því miður stundum að hafna spennandi verkefnum. Styrkbeiðnum er ekki svarað í síma.
Eftirfarandi verður að koma fram á umsóknarbeiðninni:
- Hver sækir um: Einstaklingur - félag - samtök
- Tengiliður: Nafn, símanúmer/GSM og netfang
- Hvers vegna er sótt um: Samandreginn texti um helstu atriði umsóknar
- Upphæð sem sótt er um
- Tímarammi - dagsetning
- Einnig má senda með viðhengi með ítarlegri texta og öðru ítarefni þar sem við á.
Hér getur þú sótt um styrk á netfangið styrkur@vinbudin.is
Laus störf eru auglýst hér á vinbudin.is. Allar atvinnuumsóknir eru afgreiddar í gegnum vefinn og því nauðsynlegt að senda okkur umsókn þar.
Bæði er hægt að sækja um með því að smella á viðeigandi starf eða senda inn umsókn ef þú vilt vera á skrá.
Vínráðgjafar svara spurningum um veisluvín
Pantið tímanlega
Bjórkúta þarf að sérpanta í vefversluninni - þeir eru ekki til á lager í Vínbúðum!
Vinsamlegast hafið í huga að panta tímanlega þar sem það getur tekið allt að viku að fá bjórkúta afhenta!
Dælur
Vert er að benda á að upplýsingar um dælur fyrir bjórkúta fást hjá heildsölum, en Vínbúðirnar bjóða ekki upp á leigu á slíku. Upplýsingar um heildsala er að finna í vöruspjaldi hverrar tegundar fyrir sig. Einnig er hægt að fá dælur leigðar hjá ýmsum þjónustuaðilum s.s. partýleigum. Athugið að dælur passa yfirleitt ekki á milli tegunda.
Tómir kútar / skil
Tómum kútum er skilað til heildsala (Vínbúðirnar taka ekki við þeim). Í sumum tilfellum er skilagjald á kútum innifalið í verði, en það er þá endurgreitt hjá heildsala við skil á kútum.
Reglan segir að þurrt henti betur sem fordrykkur. Við Íslendingar erum þó dálitlir sætukoppar þannig að freyðivín með smá sætu í eru vinsæl. Freyðandi norður-ítölsk Asti spumante eru vinsæl, einnig Moscato d‘Asti sem eru léttari í freyðingu og lægri í alkóhóli. Freyðivín frá Cava á Spáni eru líka vinsæl þar sem Brut er þurrast, Seco hálfþurrt (nýtur vaxandi vinsælda) og sætast af þessum er Semi Seco. Til eru líka afbragðs freyðivín frá öðrum löndum, ekki síst frá nýja heiminum.
Það eru ekki margar veislur sem haldnar eru án þess að bjór komi við sögu og þá vakna spurningar um hvort á að vera með litlar eða stórar dósir. Oftast er hagkvæmt að að vera með litlar dósir ef ekki er einhver sem sér um að hella í glös því að töluvert verði eftir í þeim stóru. Margir kjósa frekar að nota glerflöskur en dósír í veislur.
Hér er að finna reiknivél sem þú getur notað til að áætla magn á víni fyrir veisluna þína. Vínráðgjafar hafa sett fram tillögur fyrir nokkra viðburði, en útreikningurinn er einungis til viðmiðunar. Mikilvægt er að hver og einn meti sínar aðstæður sérstaklega. Margt getur haft áhrif á það magn sem þarf að kaupa svo sem veður, tímasetning, samsetning gesta o.fl.
Munið að þegar bera á fram freyðivín, hvítvín eða bjór þá þarf að hugsa tímanlega fyrir kælingunni. Best er að bera vín fram vel svöl og huga að því aðstaða sé til að kæla vínin. Eins þarf að huga að rauðvíninu tímanlega, þ.e. taka þau inn í stofuhita og bera þau fram um 16-18 gráður. Þó er það aðeins misjafnt eftir vínum, en starfsfólk Vínbúðanna ætti að geta svarað því hvaða hitastig hentar hverju víni best.
Ekki vera á síðustu stundu með að panta vín í veisluna því þá gæti endað með að þú endir með annað vín en lagt var upp með. Gott er að hafa 2-3 daga til að afgreiða vínin því verslanir eru oft ekki með stóran lager af öllum vörum.
Reynið að forðast of kraftmikil vín þegar vín eru valin í veislu (á aðallega við um rauðvínin). Veljið heldur léttari vínin frá Nýja-heiminum, spænsk Crianza vín eða léttari frönsk vín. Reyndar er hægt að finna létt vín frá flestum löndum en leitið gjarnan ráðgjafar eða smakkið sjálf. Hvítvínin mega gjarnan vera ávaxtarík og sæmilega kröftug en fyrir alla muni þurr. Góður Chardonnay, ítalskur Soave, ný-sjálenskur Sauvignon Blanc eða önnur sæmilega kröftug.
Gefið ykkur tíma til að smakka og þá gjarnan með matnum sem bera á fram í veislunni eða leitið ráða hjá vínráðgjöfum Vínbúðanna. Veljið vín sem þið kunnið að meta og líklegt sé að þorri gesta verði ánægður með. Berið saman verð og reiknið út að t.d. í 100 manna veislu þar sem nota þarf 50 fl. þá eykst kostnaðurinn einungis um 5000 kr. þegar keypt eru 100 kr. dýrari (og stundum betri) vín.