Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Innkallanir

Áríðandi innköllun á bjór sem getur bólgnað út og sprungið

04.02.2022

ÁTVR innkallar vöruna Svartálfur Potato Porter, sem er bjór, í 330 ml áldós þar sem umbúðir vörunnar geta bólgnað út og sprungið með tilheyrandi slysahættu. Innköllunin miðast eingöngu við birgðir vörunnar merktar með best fyrir dagsetningunni: 19/05/2022. Varan hefur nú þegar verið fjarlægð úr hillum vínbúðanna. Allir sem eiga þessa vöru, með fyrrnefndri best fyrir dagsetningu, eru beðnir um að farga henni eða skila henni í næstu vínbúð og fá hana þar bætta. Ef umbúðir vörunnar eru bólgnar er rétt að leiðbeina um að opna umbúðirnar að viðhafðri fyllstu varúð.

Framleiðandi vörunnar og ábyrgðaraðili er: Álfur Brugghús ehf., Sandakur 12, 210 Garðabær. 

Strikamerki: Á áldós: 5694230411207. Á kassa sem geymir 24 áldósir: 15694230411204.

Varan hefur verið boðin til sölu í 12 verslunum ÁTVR: Kringlunni, Skeifunni, Heiðrúnu, Dalvegi, Garðabæ, Mosfellsbæ, Skútuvogi, Stekkjarbakka, Hafnarfirði, Akureyri, Reykjanesbæ, Selfossi.  

Nánari upplýsingar veitir Gunnþórunn Einarsdóttir, sérfræðingur á Vörusviði, s. 611-2764 og gunnthorunn@vinbudin.is