Eftirfarandi vörur hafa verið innkallaðar. Viðskiptavinum sem eiga neðangreindar vörur er bent á að skila þeim í næstu Vínbúð gegn endurgreiðslu eða skipti á samskonar vöru. Innkallanir geta verið af ýmsum toga, í sumum tilfella eru ákveðnar framleiðslulotur gallaðar á meðan allar lotur eru innkallaðar hjá öðrum vörum. Nánari upplýsingar um hverja innköllun er að finna við hverja vöru.
Innkallanir
19.05.2023
Viðskiptavinir athugið innköllun á bjórnum To Öl Snuble Juice Session India Pale Ale, vnr. 27510. Samkvækmt beiðni frá Heilbrigðiseftirlitinu hefur bjórinn verið innkallaður þar sem hann er seldur sem glútenfrír, en er það ekki. Varan er að öðru leyti örugg þeim sem ekki eru viðkvæmir fyrir glúteni..
15.08.2022
Domaine Franck Millet og Coca-Cola Europacific Partners á Íslandi hafa í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur ákveðið að innkalla hvítvínsflöskur af gerðinni Sancerre Domaine Franck Millet 2021 eftir að aðskotahlutur fannst vörunni. Einungis er kallað eftir flöskum með lotunúmer L4021, en það er að finna á miða aftan á flöskunni..
28.07.2022
ÁTVR og Dista ehf ehf. innkalla vöruna Albani Mosaic IPA, Alk 5,7% vol., sem er bjór í 330 ml áldós þar sem bjórdós getur bólgnað út og kann að springa.
Innköllunin miðast eingöngu við birgðir vörunnar merktar með best fyrir dagsetningunni: 11/05/2023.
Varan með umræddri best fyrir dagsetningu hefur nú þegar verið fjarlægð úr hillum Vínbúðanna. Þau sem eiga þessa vöru, með fyrrnefndri best fyrir dagsetningu, eru beðin um að farga henni eða skila henni í næstu Vínbúð og fá hana þar bætta.
18.07.2022
ÁTVR og S.B. brugghús ehf. innkalla vöruna Cyclopath Pale Ale, sem er bjór í 330 ml áldós þar sem bjórdós getur bólgnað út og kann að springa.
12.07.2022
ÁTVR innkallar vöruna Sóló Sumarbjór, sem er bjór, í 330 ml áldós þar sem umbúðir vörunnar geta bólgnað út sé varan ekki geymd í kæli og sprungið með tilheyrandi slysahættu. Innköllunin miðast eingöngu við birgðir vörunnar merktar með best fyrir dagsetningunni: 22/10/2022. Varan hefur nú þegar verið fjarlægð úr hillum vínbúðanna. Allir sem eiga þessa vöru, með fyrrnefndri best fyrir dagsetningu, eru beðnir um að farga henni eða skila henni í næstu Vínbúð og fá hana þar bætta. Ef umbúðir vörunnar eru bólgnar er rétt að leiðbeina um að opna umbúðirnar að viðhafðri fyllstu varúð.
Framleiðandi vörunnar og ábyrgðaraðili er: Og natura / Íslensk hollusta ehf, Hólshraun 5, 220 Hafnarfjörður
Strikamerki: Á áldós: 5694230446667.
Varan hefur verið boðin til sölu í ÁTVR
Nánari upplýsingar veitir Gunnþórunn Einarsdóttir, sérfræðingur á Vörusviði, s. 611-2764 og gunnthorunn@vinbudin.is
04.02.2022
ÁTVR innkallar vöruna Svartálfur Potato Porter, sem er bjór, í 330 ml áldós þar sem umbúðir vörunnar geta bólgnað út og sprungið með tilheyrandi slysahættu..
13.12.2021
Ölgerðin hefur ákveðið að innkalla Tuborg Julebryg í 330 ml gleri vegna tilkynningar um fund á broti úr gleri í slíkri flösku. Atvikið er nú til ítarlegrar rannsóknar innan Ölgerðarinnar, en þar til niðurstaða liggur fyrir hefur verið ákveðið að innkalla flöskur sem eru með framleiðsludagana „18.nóvember 2021“ og „19.nóvember 2021“ og best fyrir dagsetningarnar 18.08.22 og 19.08.22
24.09.2021
Budweiser Budvar hefur gripið til þeirra varúðarráðstafana að innkalla eftirfarandi vöru hér á landi vegna hugsanlegrar örverumengunar sem getur haft veruleg áhrif á bæði bragð og gæði bjórsins. Um er að ræða Budweiser Budvar Original Lager 0,5L í dós með framleiðslu dagsetninguna 17.6.21 og “best fyrir” 17.6.22.