Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

ÁTVR hafnar alfarið niðurstöðum Clever Data

15.05.2015

Að gefnu tilefni vegna umræðu sem orðið hefur i kjölfar skýrslu Clever data er rétt að eftirfarandi komi fram.  Skýrslan er á engan hátt unnin fyrir ÁTVR eða í samvinnu við ÁTVR. Niðurstöður hennar eru vangaveltur sem eiga sér litla stoð í raunveruleikanum og ÁTVR hafnar þeim alfarið. ÁTVR hefur aldrei verið rekin með tapi frá því að áfengisgjöld og tóbaksgjöld voru aðskilin frá rekstrartekjum verslunarinnar. 

 
ÁTVR er lögum samkvæmt rekin sem ein heild, þ.e.a.s. starfsemin að því er lýtur að smásölu áfengis annars vegar og heildsölu tóbaks hins vegar er ekki aðgreind í rekstri fyrirtækisins eða bókhaldi. Ljóst er að aðgreindur rekstur hefði í för með sér verulega óhagkvæmni, enda eru veigamiklir rekstrarliðir sameiginlegir báðum þáttum starfseminnar. Nægir hér til dæmis að nefna húsnæðiskostnað, kostnað við meðhöndlun vöru í vöruhúsi, rekstur tölvukerfa, vöruinnkaup,  vörudreifingu og launakostnað. Í bókhaldi ÁTVR er ekki sundurgreint hvernig slíkur kostnaður deilist á milli áfengis- og tóbakshlutans og því eru engin gögn til um kostnaðarskiptingu. Kostnaður vegna vörunotkunar áfengis annars vegar og tóbaks hins vegar er hins vegar aðgreindur í rekstrinum og sundurliðaður í ársreikningi fyrirtækisins.
 
Rétt er að benda á að ÁTVR ræður ekki álagningu sinni á áfengi og tóbak. Smásöluálagning á áfengi og heildsöluálagning á tóbak hefur verið lögákveðin frá því síðla árs 2008, þegar lög nr. 149/2008, um breyting á lögum um verslun með áfengi og tóbak, nr. 63/1969, með síðari breytingum tóku gildi. Það er því Alþingis að ákveða hver álagning ÁTVR á áfengi og tóbak skuli vera. Samkvæmt 2. mgr. 9. gr. núgildandi laga um verslun með áfengi og tóbak skal álagning ÁTVR á áfengi með 22% eða lægra hlutfall af vínanda að rúmmáli vera 18% en álagning áfengis með meira en 22% hlutfall af vínanda að rúmmáli skal vera 12%. Samkvæmt 3. mgr. sama lagaákvæðis skal heildsöluálagning ÁTVR á tóbak vera 18%. Álagning ÁTVR á áfengi og tóbak leggst á verð vöru að viðbættum öllum gjöldum nema virðisaukaskatti, sbr. 4. mgr. tilvitnaðs lagaákvæðis. 
   
Sjá má af ársreikningi ÁTVR að heildsala tóbaks skilar hlutfallslega meiri hagnaði en smásala áfengis. Munurinn ræðst fyrst og fremst af ákvörðun Alþingis um álagningu, sem áður er vísað til, og eins því að eðli máls samkvæmt kallar smásala áfengis á talsvert fleiri handtök og meira umstang en heildsala á tóbaki.