Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Vínbúðin fyrirmyndarstofnun!

16.02.2024

Niðurstaða í Stofnun ársins 2023 var kynnt í gær, fimmtudaginn 15. febrúar, og hlaut Vínbúðin titilinn fyrirmyndarstofnun ársins 2023. Titilinn hljóta fyrirtæki og stofnanir sem þykja skara fram úr í þeim níu þáttum sem könnunin byggir á að mati starfsmanna. Í ár tóku nærri 17.000 starfsmenn þátt í könnuninni. Stærðarflokkarnir eru þrír og er Vínbúðin í flokki þeirra sem eru með 90 eða fleiri starfsmenn.
 
Í hverjum stærðarflokki hljóta efstu fimm stofnanirnar sæmdarheitið Fyrirmyndarstofnanir. Fjölbrautaskóli Suðurnesja er sigurvegari stórra stofnana, en annað árið í röð vermir Vínbúðin annað sætið með heildareinkunnina 4,35 af 5 mögulegum. 
 
Í könnuninni eru þátttakendur spurðir út í níu þætti í starfsumhverfinu þ.e. trúverðugleika stjórnenda, starfsanda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleika í starfi, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægju og stolt og jafnrétti. Markmiðið með að velja fyrirmyndarstofnanir er að hvetja stjórnendur stofnana til að huga að mannauðsmálum og auka umræðu um aðbúnað og líðan starfsmanna á vinnustöðum. Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fjölmargra annarra stofnana.
 
Á vef Sameyki er hægt að kynna sér niðurstöðurnar nánar.