Vínbúðin fyrirmyndarstofnun 2025

12.02.2026

Í niðurstöðu fyrir Stofnun ársins hlaut Vínbúðin titilinn fyrirmyndarstofnun ársins 2025, en hjá fyrirtækinu er töluverð áhersla lögð á gott starfsumhverfi og ánægju starfsfólks. Titilinn hljóta fyrirtæki og stofnanir sem þykja skara fram úr að mati starfsmanna og skartar Vínbúðin 3. sæti á listanum. Stærðarflokkarnir eru þrír og er Vínbúðin í flokki þeirra sem eru með 90 eða fleiri starfsmenn.

Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fjölmargra annarra stofnana og vinnustaða, en hún nær til um 35.000 manns sem starfa á opinberum vinnumarkaði. Niðurstöður könnunarinnar veita bæði mikilvægar upplýsingar um starfsumhverfi vinnustaða og samanburð við aðrar stofnanir. Könnuninni er skipt í níu flokka, stjórnun, starfsanda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægju og stolt og jafnrétti. Heildareinkunn þessara þátta hjá Vínbúðinni er 4,38 en meðaltal allra stórra stofnana er 4,13.

Tilgangur með vali á Stofnun ársins er að taka eftir og veita þeim vinnustöðum viðurkenningar sem náð hafa framúrskarandi árangri við stjórnun mannauðs og því einstök ánægja að fá þessa mikilvægu viðurkenningu.