Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Vínbúðin í Borgartúni lokar

12.02.2021

Vínbúðinni í Borgartúni verður lokað frá og með mánudeginum 22. febrúar og rekstri hætt í núverandi húsnæði. ÁTVR auglýsti eftir húsnæði á svæðinu seinni hluta árs 2020 og buðu, meðal annarra, núverandi leigusalar húsnæðið áfram til leigu. Hins vegar náðust ekki samningar og sú ákvörðun því tekin nú að loka Vínbúðinni. ÁTVR harmar þessa niðurstöðu en því miður eru ekki aðrir valkostir að svo stöddu.

Við biðjum viðskiptavini okkar afsökunar á þeim óþægindum sem lokunin hefur í för með sér en bendum á að næstu Vínbúðir eru í Kringlunni, Skeifunni og Skútuvogi.