Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Verslunarmannahelgin framundan

25.07.2022

Vikan fyrir verslunarmannahelgi er að jafnaði ein annasamasta vika ársins í Vínbúðunum. Í fyrra seldust um 814 þúsund lítrar af áfengi í þeirri viku og rúmlega 142 þúsund viðskiptavinir komu í Vínbúðirnar. 

Að jafnaði er föstudagurinn fyrir verslunarmannahelgi einn af annasömustu dögum ársins. Í fyrra seldust 261 þúsund lítrar þann dag og alls fengu tæplega 41 þúsund viðskiptavinir þjónustu í Vínbúðunum. Flestir koma á milli kl. 16 og 18 og þá gæti þurft að grípa til þess ráðs að hleypa viðskiptavinum inn í hollum. 
Fyrir þá sem vilja forðast raðir er gott að huga að því að vera tímanlega! Gott ráð er að kíkja við fyrri part vikunnar og fyrri part dagsins.


Allt kapp er lagt á að taka vel á móti viðskiptavinum svo allt gangi sem best fyrir sig.
Í Vínbúðunum er opið samkvæmt venju um verslunarmannahelgi á föstudag og laugardag en lokað sunnudag og mánudag (frídag verslunarmanna).

Hér er hægt að sjá nánar opnunartíma allra Vínbúða.