Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Úrval kokteiluppskrifta

08.10.2021

Á KOKTEILSÍÐU VÍNBÚÐANNA er hægt að finna úrval uppskrifta af spennandi kokteilum, bæði áfengum og óáfengum, sem henta flestum tilefnum. Hægt er að leita eftir tegundum, litum og jafnvel hvort boðið er upp á drykkinn fyrir eða eftir mat, í veislu eða til að ylja sér á vetrarkvöldum! 

Vínráðgjafar hafa sett saman frábærar leiðbeiningar fyrir sérhvern kokteil þar sem bent er á erfiðleikastig, hentuga glasategund til að bera kokteilinn fram í og hvaða áhöld er gott að hafa við höndina. Þá er einnig hægt að smella á innihaldsefnin og sjá hvað er til í okkar vörusafni hverju sinni.

Njótið vel!