þorrabjór hefst í Vínbúðunum fimmtudaginn 14. janúar en upphaf þorrans er á Bóndadaginn, föstudaginn 22. janúar." />
Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Þorrabjórinn 2021

12.01.2021

Árstíðabundnir bjórar hafa verið vinsælir undanfarin ár og nú þegar þorrinn gengur senn í garð er eins og áður boðið upp á úrval sérgerðra bjóra fyrir tilefnið. Sala á þorrabjór hefst í Vínbúðunum fimmtudaginn 14. janúar en upphaf þorrans er á Bóndadaginn, föstudaginn 22. janúar. 

Í ár er áætlað að 17 tegundir af þorravörum verði í boði þar sem framleiðendur leika sér m.a. með stíla, framandi hráefni og eikarþroskun. Hægt er að sjá hér á vinbudin.is hvað er væntanlegt og þegar salan hefst í hvaða Vínbúð hver tegund fæst. 

Flesta þorrabjóra verður hægt að kaupa í Vefbúðinni, en sumar árstíðabundnar vörur koma til okkar í mjög takmörkuðu magni og því alltaf einhverjar tegundir sem klárast fljótt. Sölutímabili þorrabjórs lýkur svo 20. febrúar.

Gleðilegan þorra!