Alls voru seldir 19.216 þús. lítrar af áfengi á árinu 2014 sem er 3% aukning frá fyrra ári en þá seldust 18.653 þús. lítrar.
![Sala áfengis og tóbaks árið 2014](Portaldata/1/Resources/frettir/2015/sala2014_1.JPG)
Lítilsháttar aukning var í sölu á rauðvíni og ókrydduðu brennivíni og vodka en aftur á móti er 0,5% samdráttur í sölu á hvítvíni á árinu. Dregið hefur úr vexti á sölu ávaxtavína en á milli áranna 2012 og 2013 jókst salan í þessum flokki um 71% úr 181 þús. lítrum í 310 þús. lítra. Á árinu 2014 jókst salan í þessum flokki um 12,2% og sala á blönduðum drykkjum jókst um 16,2% á milli ára.
Breyting á sölumagni eftir flokkum má sjá á meðfylgjandi mynd.
![Breyting á sölulmagni eftir flokkum](Portaldata/1/Resources/frettir/2015/sala2014_2.JPG)
Alls komu 4.383.097 viðskiptavinir í Vínbúðina á árinu 2014 í samanburði við 4.285.091 viðskiptavini árið 2013. Flestir viðskiptavinir komu í Vínbúðirnar föstudaginn 1. ágúst eða rúmlega 42 þúsund. Í samanburði má gera ráð fyrir að á hefðbundnum föstudegi komi um 28 þúsund viðskiptavinir.
![Í samanburði má gera ráð fyrir að á hefðbundnum föstudegi komi um 28 þúsund viðskiptavinir.](Portaldata/1/Resources/frettir/2015/sala2014_3.JPG)
Sala tóbaks
Mikil aukning varð í sölu neftóbaks á árinu eða 19%. Alls seldust tæp 33 tonn af neftóbaki í samanburði við 27,6 tonn árið áður. Lítilsháttar aukning var í sölu á vindlingum (sígarettum) en samdráttur var í sölu á vindlum um 4,5%
![Tóbak](Portaldata/1/Resources/frettir/2015/sala2014_4.JPG)