Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Páskasalan 2020

14.04.2020

Salan í páskavikunni það er frá 6. apríl – 11. apríl var 621.957 lítrar í ár en sambærilega daga í fyrra var salan 526.239 lítrar sem þýðir að aukningin er 18% á milli ára. Á sama tímabili voru 4% fleiri viðskiptavinir í ár eða 98.807 samanborið við 95.158 í fyrra.

Miðvikudagurinn fyrir páska er einn af söluhæstu dögum ársins, en í ár seldust um 236 þús. lítrar, sem er svipað og sama dag í fyrra, en salan dreifðist mun jafnar niður á dagana í ár.

Við þökkum viðskiptavinum fyrir tillitssemi og þolinmæði vegna fjarlægðatakmarkana og biðraða sem mynduðust á mestu háannatímum vegna takmarkana sökum samkomubanns.