Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Opið samkvæmt venju

23.03.2020

Allar Vínbúðir eru opnar samkvæmt venju, en við bendum viðskiptavinum á að forðast annatíma eins og hægt er og nota skynsemina í samskiptum við starfsfólk og aðra viðskiptavini. Við bendum á nokkur góð ráð til að forðast mögulegar smitleiðir:

  • Forðumst annatíma 
    Það er rólegra hjá okkur fyrri hluta dags og í upphafi vikunnar
     
  • Virðum 2. metra regluna
    Reynum eftir besta megni að vera ekki nær viðskiptavinum eða starfsfólki þar sem því verður við komið.
     
  • Handleikum ekki að óþörfu
    Forðumst að snerta þær vörur sem við erum ekki að kaupa.
     
  • Notum rafrænar greiðslur 
    Minnkum notkun peninga í umferð eins og hægt er og nýtum frekar rafrænar greiðslur eða kort.
     
  • Við takmörkum fjölda
    Við takmörkum fjölda viðskiptavina á hverjum tíma.

Með því að standa saman minnkar áhættan bæði fyrir viðskiptavini og starfsfólk í baráttunni við útbreiðslu á COVID-19.