Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Nú getur þú sérpantað á vefnum

23.01.2018

Í vörulistanum hér á vinbudin.is finnur þú allt það vöruval sem er í sölu í Vínbúðunum á hverjum tíma. Hægt er að kaupa flestar þær vörur í Vefbúðinni, en einnig er nú auðvelt að sérpanta þær vörur sem ekki eru til í hillum Vínbúðanna. 

Vörur sem þarf að sérpanta eru merktar sérstaklega. Í sumum tilfellum er hægt að kaupa vöruna beint í Vefbúðinni, en annars er send fyrirspurn um hvort varan sé fáanleg hverju sinni. Sérpantaðar vörur taka lengri tíma í afhendingu, en áætla má að það geti tekið um 3-10 daga að fá slíka vöru í hendurnar. 

Unnið er að því að bæta enn frekar úrvalið af vörum til að sérpanta og markmiðið að viðskiptavinir hafi aðgang að sem fjölbreyttustu úrvali í Vefbúðinni.