Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Jólabjórinn kemur 3. nóvember

26.10.2022

Sala jólabjórs og annarra jólavara hefst í Vínbúðunum fimmtudaginn 3. nóvember. Viðskiptavinir bíða jafnan spenntir eftir þessum árlega viðburði, enda margir áhugasamir um þá flóru sem í boði verður. Um 130 vörunúmer verða í sölu sem er nokkuð sambærilegt og í fyrra. Þar af eru um 30 nýjar tegundir sem ekki hafa verið áður í sölu. 

Í  Vefbúðinni má á hverjum tíma sjá lista yfir þær tegundir sem áætlað er að verði í sölu, en listinn er síbreytilegur fram að sölubyrjun þar sem skráning vara er enn í fullum gangi.  Dreifing tegunda er misjöfn eftir Vínbúðum, en þegar sala hefst er hægt að sjá hvar viðkomandi vara fæst með því að smella á heiti vörunnar. Einnig verður hægt að nálgast flestar jólavörurnar í Vefbúðinni og fá sent gjaldfrjálst í næstu Vínbúð. Úrvalið er því það sama um allt land.