Og natura / Íslensk hollusta í samstarfi við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnafjarðar, Kópavogs og Reykjavíkur hefur ákveðið að kalla inn eina lotu af Storm Romm. Um er að ræða Romm í 700 ml glerflösku með lotumerkingu 05.4 þar sem glerbrot fannst í einni flösku.
Viðskiptavinir sem hafa keypt vöruna með fyrrgreindri lotumerkingu eru beðnir að neyta hennar ekki, heldur að skila henni til dreifingaraðila Og natura, Hólshrauni 5 eða hafa samband með tölvupósti ognatura@ognatura.com. Einnig má skila vörunni í Vínbúðir og fá endurgreitt.
Búið er að gera innköllun úr Vínbúðum og lotan sem málið varðar er ekki í sölu lengur.
Skoða nánari upplýsingar um innkallanir.