Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Hætt við innköllun á Helgu í dós

13.09.2021

Uppfært: Fallið hefur verið frá innköllun á Helgu Nr.69.  Gengið hefur verið úr skugga um að hnetur í snefilmagni mælast ekki í hráefnum vörunnar.

____

Ölgerðin hefur ákveðið að innkalla Helgu 0,33l dós frá Borg brugghús. Þetta á við um allar framleiðslulotur af þessum vörum.  

Ástæða innköllunarinnar er ófullnægjandi merkingar á umbúðum þar sem drykkirnir geta hugsanlega innihaldið hnetur í snefilmagni, vegna krossmengunar við framleiðslu á hráefni sem notað er í báðar þessar vörur.

Viðskiptavinir sem eiga ofangreindar vörur er bent á að skila vörunni í þeirri verslun sem hún var keypt gegn endurgreiðslu eða skipti á samskonar vöru. Helga hefur verið í dreifingu í verslunum ÁTVR. 

Hindberjagos frá Öglu gosgerð 0,33l gler hefur einnig verið innkallað, en sú vara hefur verið í dreifingu í eftirfarandi verslunum: Krónunni, Hagkaup, Fjarðarkaup, Melabúðin og verslunum samkaupa (Iceland og Nettó).