Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Framkvæmdir í Skeifunni

08.01.2019

Vínbúðin Skeifunni verður lokuð vegna framkvæmda frá mánudeginum 14.janúar fram í mars. 

Við bendum viðskiptavinum á að næsta Vínbúð með sama opnunartíma er í Skútuvogi, þar sem opið er mánudaga til föstudaga frá 10-20 og laugardaga 11-18. Einnig má benda á nálægar Vínbúðir í Kringlu og Borgartúni þar sem opið er frá 11-18 og 11-19 á föstudögum.


Við þökkum þolinmæðina og hlökkum til að taka á móti ykkur í enn betri Vínbúð í Skeifunni.