ÁTVR hefur hlotið lífræna vottun frá vottunarstofunni Tún. Vottunin staðfestir að verklag við móttöku, geymslu, dreifingu og sölu lífrænna vara uppfylli viðeigandi kröfur.
Markmiðið er að tryggja rekjanleika og áreiðanlegar upplýsingar um lífrænar vörur í Vínbúðunum.
Vottunin er hluti af gæðastarfi ÁTVR og stuðlar að auknu gagnsæi og trausti á upplýsingum um uppruna og vottun þeirra vara sem seldar eru í Vínbúðunum.