Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Ársskýrsla 2019 komin út

29.05.2020

Ársskýrsla ÁTVR 2019 er komin út, nú í fimmta sinn á rafrænu formi.  Í skýrslunni má finna ítarlegar upplýsingar um rekstur og starfsemi.

Stefna ÁTVR er að vera í hópi fremstu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar. Í skýrslunni er gerð grein fyrir áherslum gagnvart hagsmunaaðilum, en allar miða þær að því að fylgja þeim áherslum sem koma fram í heildarstefnunni.

Skýrslunni fylgir einnig sjálfbærniskýrsla og yfirlit yfir þau Heimsmarkmið sem ÁTVR hefur lagt áherslu á nú undanfarið.

Hér má nálgast skýrsluna í heild sinni.