ÁRSSKÝRSLA ÁTVR 2025

08.04.2026

Árs – og samfélagsskýrsla ÁTVR fyrir árið 2025 er komin út á rafrænu formi.  Í skýrslunni má finna ítarlegar upplýsingar um rekstur og starfsemi fyrirtækisins.

Hagnaður ársins var tæpar 795 milljónir samanborið við tæpar 537 milljónir króna árið á undan, greiddur var 750 milljóna króna arður til ríkissjóðs fyrir árið 2025. Áfengi var selt fyrir 33.484 millj.kr. Í lítrum dróst sala áfengis saman um 5,62% á milli ára, en alls seldust yfir 21 milljónir lítra, þar af bjór rúmlega 16 milljón lítrar. Sala tóbaks var 7.958 millj.kr en sala vindlinga í magni dróst saman um 3%.
 
Við gerð skýrslunnar er fylgt Global Reporting Initiative (GRI) Standards. Tilgangurinn er að skrá og miðla með gagnsæjum hætti upplýsingum sem tengdar eru samfélagslegri ábyrgð. Í samræmi við stefnu ÁTVR er að finna ítarlegan kafla um umhverfis- og loftlagsmál, en auk þess er farið yfir helstu stefnuáherslur og mælanleg markmið sem sett eru fyrir fjölmarga þætti í rekstrinum.

Ársskýrsluna má nálgast hér.