Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Vinbud.is tilnefnt til Íslensku vefverðlaunanna

29.10.2003

Vinbud.is er tilnefnt til íslensku vefverðlaunanna 2003, sem besti fyrirtækjavefurinn ásamt www.ikea.is, www.ogvodafone.is, www.ossur.is og www.toyota.is.

Vefirnir voru tilnefndir af almenningi og eru Íslensku vefverðlaunin veitt í þriðja skipti í ár, en þetta er í annað skipti sem hátíðin er haldin af Vefsýn og ÍMARK í sameiningu.

Verðlaunin eru afhent af tilefni markaðsviku ÍMARK  sem stendur 27.-31. október.
Tilgangur markaðsvikunnar er að vekja athygli á faglegu markaðsstarfi og mikilvægi þess í nútíma viðskiptaumhverfi.