Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Ný vínbúð á Reyðarfirði

06.06.2005

Ný vínbúð var opnuð á Reyðarfirði fimmtudaginn 2. júní sl. Búðin er í 200 tegunda flokki og verður opin mán-fim: kl. 14-18 og föstudaga kl. 14-19.

Á Austur landi, frá Höfn að Þórshöfn eru núna 9 vínbúðir og 46 vínbúðir á landinu öllu. Verslunin er rekin í samstarfi við SÚN og er staðsett inn af verslun Veiðiflugunnar í verslunarkjarnanum Molanum.
Verslunarstjóri er Björgvin Pálsson.