Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

ÁTVR tilnefnt til Umhverfisviðurkenningar Reykjavíkurborgar 2005

19.09.2005

ÁTVR hefur verið tilnefnt til Umhverfisviðurkenningar Reykjavíkurborgar 2005. Alls eru 13 fyrirtæki tilnefnd, en það var Gámaþjónustan sem tilnefndi ÁTVR til þessarar viðurkenningar.

Umhverfisviðurkenning Reykjavíkurborgar er veitt fyrirtæki eða stofnun sem leitast við að haga rekstri sínum eða einstökum rekstrarþáttum í samræmi við grunnregluna um sjálfbæra þróun.  Til greina koma fyrirtæki eða stofnanir í Reykjavík sem sýnt hafa slíka viðleitni. 

Viðurkenningin verður veitt formlega við opnun sýningar vegna 100 ára afmælis Heilbrigðisnefndar Reykjavíkur þann 21. september nk.  Þetta er í níunda skiptið sem þessi viðurkenning er veitt, en hún kom í hlut Skeljungs hf. árið 2004.