Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Ársskýrsla ÁTVR komin út

12.04.2006

Vínbúðirnar verða lokaðar laugardaginn 17.júní.Ársskýrsla ÁTVR er nú komin út þar sem gerð er grein fyrir rekstrartölum og helstu þáttum í starfsemi fyrirtækisins.
Alls voru 46 vínbúðir í rekstri í árslok, en heildartekjur ÁTVR voru 16.641 millj.kr. Tekjur af sölu áfengis jukust um 8,7% frá árinu 2004. 

Tekjur af sölu tóbaks jukust um 7% á milli ára, en um verðhækkun var að ræða á árinu. Sala á tóbaki dróst (því í raun) saman um 1% í magni. 

Hagnaður var 541 millj.kr. sem er besta afkoma frá því að skattar voru aðskildir frá tekjum ÁTVR.  Alls voru seldir 17,2 millj.lítrar af áfengi í heildina, þar af 13,3 millj. lítrar af bjór.