Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Sala áfengis í júní

10.07.2006

Sala áfengis í júní var tæp 14% meiri en í sama mánuði árið 2005. Aukning í sölu áfengis í ltr. frá janúar til júní er rúm 9%.

Tæplega 339 þúsund viðskiptavinir komu í vínbúðirnar 46 í júnímánuði og er það 6,9% fleiri viðskiptavinir en komu í

vínbúðirnar sama mánuð í fyrra.

Fyrsta helgin í júlí er oft talin með stærstu helgum ársins í sölu á áfengi. Í ár komu rétt rúm 80 þús. viðskiptavinir

í vínbúðirnar dagana 26.júní til laugardagsins 1.júlí. Varla er hægt að tala um aukningu milli ára þegar miðað

er við sama tímabil fyrir ári, því aukningin í fjölda viðskipta er einungis 0,6%.