Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Sölustarfsemi í og við Vínbúðir

25.09.2006

Til ÁTVR berast of beiðnir um að fá að selja t.d. happdrættismiða eða annað sambærilegt. Nú hafa verið settar reglur sem banna sölustarfssemi í og við vínbúðir og þær færðar í gæðahandbók.

Reglurnar eru:

ÁTVR leyfir ekki sölustarfsemi, t.d. miða- eða happdrættissölu, í og við vínbúðir sínar.

Til greina kemur að veita undanþágur til samtaka sem starfa á sviði forvarnar í áfengis- og tóbaksmálum.

Slíkar undanþágur er hægt að sækja um hjá Jónínu A. Sanders (jonina@vinbud.is).

Í umsókninni þarf að koma skýrt fram nafn samtaka sem sækja um undanþáguna, staðsetning (vínbúð), dags. og tími sölu.