Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Eldri starfsmannafatnaður ÁTVR afhentur Rauða Kross Íslands

02.11.2006

Eldri starfsmannafatnaður ÁTVR afhentur Rauða Kross ÍslandsNýr einkennisfatnaður hefur verið tekinn í notkun í Vínbúðunum.  Eldri einkennisfatnaði var safnað saman á Stuðlahálsi ásamt öðrum fötum sem starfsfólk lét af hendi rakna.   Afraksturinn var síðan afhentur Rauða Krossinum sem hyggst senda hann til Malawi, en þar er mikið neyðarástand.  Ívar J. Arndal forstjóri ÁTVR ásamt Einari S. Einarssyni framkvæmdastjóra afhentu fatnaðinn, en Örn Ragnarsson frá Rauða Krossinum tók á móti honum og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri.