Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Sala áfengis á árinu 2006

08.01.2007

Sala áfengis á árinu 2006

18,4 milljónir lítra seldust í vínbúðunum af áfengi á árinu 2006.  Þar af var bjór 14,2 milljónir lítra (um 77% af allri magnsölu).  Aukning í seldu magni er 7,1% milli áranna 2005 og 2006.

 

Sala á rauðvíni var 1,79 milljónir lítra og er það tæpu einu prósenti meira en sala ársins 2005, en sala á rauðvíni jókst á milli 9% og 19% (meðalaukning 14,5%) milli áranna 1998 til 2005.

 

Sala á ókrydduðu brennivíni og vodka eykst um 9% á milli ára.  Er það í fyrsta skipti frá árinu 1998 sem merkjanleg aukning er í seldu magni milli ára í þessum vöruflokki.

 

Sala á hvítvíni jókst um 14% milli ára og er það svipuð aukning og meðalsöluaukning síðustu sjö ára.  Meðalsöluaukning á rauðvíni síðastliðin sjö ár er um 12,5%.

Sala í þús. ltr. 2006

Sala í þús. ltr. 2005

Breyting %

Rauðvín

1.791

1.774

1%

Hvítvín

811

712

14%

Rósavín

97

116

-16%

Freyðivín

116

115

1%

Styrkt vín

59

61

-3%

Ávaxtavín

77

69

11%

Brandí

61

62

-2%

Ávaxtabrandí

0,4

0,2

89%

Viskí

95

90

5%

Romm

65

63

4%

Tequila o.fl.

2

2

-31%

Ókryddað brennivín  og vodka

309

283

9%

Gin & sénever

64

65

-2%

Snafs

30

34

-10%

Líkjör

89

96

-7%

Bitterar, kryddvín, aperitífar

57

62

-8%

Blandaðir drykkir

332

299

11%

Lagerbjór

14.257

13.189

8%

Öl

120

123

-2%

Aðrar bjórtegundir

32

28

15%

Samtals

18.464

17.245

7,1%