Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Veisluvínsþjónusta

20.02.2007

Vínbúðirnar bjóða  viðskiptavinum sínum uppá Veisluvínsþjónustu.

Oft reynist erfitt að ákvarða rétt magn af víni fyrir veislur eða velja vín með matnum og þá er gott að fá aðstoð hjá vínráðgjafa vínbúðanna, Júlíusi Steinarssyni. Júlíus hefur aðsetur í Vínbúðinni Heiðrúnu og er hægt að fá ráðgjöf á staðnum, símleiðis eða með tölvupósti. Við hvetjum viðskiptavini til að nýta sér þessa góðu þjónustu.

Einnig geta viðskiptavinir nýtt sér veislureiknivélina til að áætla magnið fyrir veisluna.

Afgreiðslutími Veisluvíns þjónustunnar er mánudaga-föstudaga frá 11-17                    

Beinn sími er 560-7726 og netfang er veisluvin@vinbud.is