Fréttir
31.05.2007
Vínbúðinni Holtagörðum hefur verið lokað vegna framkvæmda og breytinga á húsnæði.
Ný vínbúð verður opnuð miðvikudaginn 13. júní í Skeifunni.
25.05.2007
Lokað er í vínbúðum mánudaginn 28.maí, annan í Hvítasunnu.
Afgreiðslutími vínbúða á föstudag og laugardag er með hefðbundnum hætti.
18.05.2007
Áætlað er að opna þrjár nýjar vínbúðir á árinu, þar af tvær á höfuðborgarsvæðinu. Ný vínbúð verður opnuð í Skeifunni í húsnæðinu þar sem Krónan var áður, en áætlað er að opna vínbúðina í júní. Einnig er áætlað að opna nýja 200 tegunda vínbúð á Hellu í lok júní...
11.05.2007
Miðvikudaginn 16.maí verða allar vínbúðirnar opnar eins og um föstudag sé að ræða. Á höfuðborgarsvæðinu verður því opið frá 9-20 á Dalvegi og Holtagörðum, en frá 11-19 í öðrum vínbúðum...
07.05.2007
Um er að ræða almenn lagerstörf í dreifingarmiðstöð. Vinnutíminn er frá 7:30 til 16:30.
Áhersla er lögð á stundvísi og dugnaði og þurfa umsækjendur að vera líkamlega hraustir þar sem um töluverðan burð er að ræða. Ráðið verður í stöðurnar sem fyrst...
02.05.2007
Í maí fögnum við komu sumarsins með því að slá upp ítalskri veislu í vínbúðunum. Við flöggum ítalska fánanum og er hinn mikli menningararfur landsins í brennidepli, en vínið er jú stór hluti hans. Bækling með þemavínunum má nálgast í öllum vínbúðunum...
02.05.2007
Verð á áfengi hækkaði um 0,23% 1. maí, en engin hækkun var á tóbaki.
16.04.2007
Vefbúð/vöruskrá ÁTVR liggur niðri vegna uppfærslu á tölvukerfi okkar. Uppfærslunni lýkur í byrjun júní.
Við biðjumst velvirðingar á ónæðinu.
16.04.2007
ÁTVR óskar eftir starfsmanni til starfa í innkaupaeiningu fyrirtækisins. Einingin annast öll innkaup á áfengi og tóbaki frá birgjum. Hún heldur einnig utan um ferli umsókna um nýja vöru.
26.03.2007
Nýhafin er auglýsingaherferð Vínbúðanna og Umferðarstofu gegn ölvunarakstri. Auglýsingarnar sýna fólk í ábyrgðarstörfum með vínglas í hendi og er yfirskriftinni 'er þetta í lagi' ætlað að undirstrika hversu fjarstæðukennt það er að aka undir áhrifum....